10

Samkvæmt grunnskólalögum er markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í grunnskólum að:

veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda,

tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár grunnskóla,

auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum,

tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum.

Mat á skólastarfi í grunnskóla er tvíþætt: Annars vegar er um að ræða mat sem skólar framkvæma sjálfir og er hér kallað innra mat. Hins vegar er um að ræða mat sem utanaðkomandi aðili vinnur á vegum sveitarfélags, ráðuneytis mennta- og menningarmála eða annarra aðila og er nefnt ytra mat (sjá einnig kafla 3).

  • Skólastjóri í samstarfi við starfsfólk ber ábyrgð á gæðum þess starfs sem fer fram í viðkomandi skóla. Í hverjum skóla skal móta skýra stefnu í samræmi við grunnþætti í menntun, markmið og áhersluþætti grunnskólalaga, ákvæða í aðalnámskrá grunnskóla og skólastefnu viðkomandi sveitarfélags. Jafnframt tekur innra mat mið af starfsaðferðum og sérstöðu hvers skóla sem fram kemur í skólanámskrá. Í skólanámskrá skal gera grein fyrir áherslum og áætlunum um innra mat.

    Í hverjum skóla ber að meta árangur og gæði skólastarfsins með kerfisbundnum hætti. Ýmsar leiðir eru færar við mat skóla á eigin starfi en mikilvægt er að það kerfi, sem unnið er eftir, henti skólastarfi viðkomandi skóla. Í vinnu við innra mat skal gerð grein fyrir tengslum við þau markmið sem sett eru fram í skólanámskrá. Hver skóli þróar aðferðir sem taka mið af sérstöðu skólans til að meta hvort og að hve miklu leyti markmiðunum hefur verið náð. Aðferðir við innra mat taka mið af þeim viðfangsefnum sem unnið er að hverju sinni.

    Innra mat á að vera samofið daglegu starfi skóla, efla þekkingu, hæfni og ígrundun á starfinu og auka vitund starfsfólks um ábyrgð. Lýðræðisleg vinnubrögð við innra mat þar sem tekið er tillit til sjónarmiða þeirra sem koma að skólastarfinu stuðla að auknum gæðum í starfinu. Niðurstöður innra mats skal nýta til umbóta í skólastarfi að höfðu samráði við skólaráð.