9

 

 

 

 

  • Foreldrar geta óskað eftir því við skólastjóra grunnskóla að barn þeirra sé útskrifað úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið, telji foreldrar að viðkomandi nemandi hafi forsendur til að innritast í framhaldsskóla. Skólastjóri skal ráðfæra sig við umsjónarkennara nemandans og sérfræðiþjónustu sveitarfélagsins áður en hann tekur ákvörðun í málinu. Skólastjóri metur hvenær nemandi hafi lokið grunnskólanámi og ber ábyrgð á útskrift hans úr grunnskóla. Nemanda ber að ljúka öllu skyldunámi samkvæmt aðalnámskrá grunnskóla með framúrskarandi árangri áður en hann útskrifast þaðan, samanber eftirfarandi viðmið:

    • Nemandi uppfylli viðmið með hliðsjón af hæfniviðmiðum aðalnámskrármeð framúrskarandi árangri.

     

    • Nemandi hafi fengið náms- og starfsráðgjöf.

     

    • Skólastjóri, umsjónarkennari og sérfræðiþjónusta telji útskrift ráðlega.

     

    • Nemandi hefur félagsþroska til að takast á við félagslegt umhverfi framhaldsskóla.

     

    Nemendur sem ekki hafa lokið grunnskólanámi geta þó hafið nám í framhaldsskóla samhliða í samráði við foreldra, viðkomandi framhaldsskóla og viðkomandi sveitarfélag, þar sem ljóst sé hvernig námið er formlega metið. Samkvæmt grunnskólalögum er gert ráð fyrir að nánar sé samið um framkvæmd og fyrirkomulag milli hlutaðeigandi grunn- og framhaldsskóla.

    Ákveði skólastjóri að synja foreldrum um útskrift úr grunnskóla áður en 10 ára skyldunámi er lokið geta foreldrar kært þá synjun grunnskóla til mennta- og menningarmálaráðuneytis sem úrskurðar í málinu.