Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1355917293

    Spænska 1, a1 - menning og tungumál
    SPÆN1MT06
    3
    spænska
    menning og tungumál
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    Spænskunáminu er skipt í erfiðleikastig samkvæmt evrópsku tungumálamöppunni. Í áfanganum er lögð áhersla á samskipti og tjáningu ásamt hinum fjóru þáttum tungumálanáms, samtali, ritun, lestri og hlustun. Í áfanganum hefja nemendur nám í menningu og tungumáli hins spænskumælandi heims. Efni hverrar kennslustundar snýst um almenna hagsmuni og þörf fyrir samskipti, svo sem að hitta fólk, tómstundir, verslun og ferðalög. Ólík svæði hins spænskumælandi heims eru kynnt og nemendur eru hvattir til að bera menninguna saman við sína eigin.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • einföldum orðum og orðasamböndum úr daglegu tali
    • almennum málhljóðum í spænsku máli
    • tölum, fjölda, kostnaði og tíma
    • ólíkum löndum og menningum á spænsku málsvæði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja algeng orð og nöfn á spænsku
    • skilja einfaldar setningar á plakötum, í vörulistum og bæklingum
    • spyrja og svara einföldum spurningum um þekkt efni
    • stafa orð á spænsku
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • kynna sálfan sig og aðra
    • segja hvað klukkan er
    • innrita sig á hótel
    • svara og spyrja spurninga um persónulega þætti
    • eiga einföld samskipti
    Verkefnavinna: 25% Hópavinna og kynningar: 25% Munnleg próf: 20% Skrifleg próf: 20% Frammistöðumat: 10%