Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur vinni með flóknari texta en áður. Unnið er með orðaforða sem tengist m.a. daglegu lífi, umhverfismálum, ferðamennsku, menntakerfi, tækni og vísindum. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast dönskum bókmenntum og hvernig þær endurspegla danskt samfélag. Í áfanganum eru lesnir bæði rauntextar og bókmenntatextar. Nemendur vinna sjálfstætt að viðameiri verkefnum í formi kynninga og ritunarverkefna.
DANS2RM07
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
danska menningarsvæðinu og hvernig danska nýtist á norræna menningarsvæðinu almennt
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta danska menningu
orðaforða til undirbúnings náms á háskólastigi
helstu hefðum við uppsetningu og skipulag ritaðs máls
mismunandi bókmenntatextum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður og algengustu orðasambönd sem einkenna það
lesa fjölbreyttar gerðir texta og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð textans eða viðfangsefnis
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
rita margs konar texta, formlega og óformlega, og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
geta beitt meginreglum danskrar málfræði og setningafræði
túlka mismunandi bókmenntatexta
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni sem hann hefur kynnt sér
nýta ritaða texta á mismunandi hátt
lesa texta þar sem ákveðin viðhorf eða skoðanir eru kynnt og bregðast við og tjá skoðanir sínar munnlega eða skriflega um efni þeirra
lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu texta
geta tjáð sig hiklaust og tekið þátt í samræðum við ólíka viðmælendur sem hafa dönsku að móðurmáli
geta skipst á skoðunum og sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
geta talað lipurlega og með nægilega góðum framburði, hrynjandi og áherslum til að vel skiljist
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um efni sem hann hefur kynnt sér
skrifa læsilega texta um sérvalið efni þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni.