Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323344716

    Kanada, ástralía og nýja sjáland
    ENSK3KÁ05
    12
    enska
    kanada, ástralía og nýja sjáland
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Kynning á fjarlægum enskumælandi menningarsamfélögum. Fjallað verður um samfélag, venjur og siði t.d. í Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og fleiri gömlum breskum nýlendum þar sem enska er annað mál. Í tengslum við það verður unnið með þarlenda rauntexta, bókmenntaverk, kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkuð verða út frá menningarlegu samhengi. Nemendur verða einnig þjálfaðir í að tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Nemendur vinna áfram sjálfstætt að viðameiri verkefnum, svo sem þematengdu efni o.fl., sem fela í sér öflun upplýsinga á bókasafni, á Netinu og margmiðlunarefni.
    ENSK2E205
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða annað mál
    • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
    • sögu, þjóðfélagsfræði og menningu á helstu málsvæðum enskunnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
    • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
    • átta sig á málfarsmun, mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg, félagsleg og fjölmenningarleg efni
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
    • skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
    Símatsáfangi