Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323681548

    Afrísk-amerískar bókmenntir
    ENSK3AB05
    9
    enska
    afrísk-amerískar bókmenntir
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður áfram unnið með þá hæfni sem nemendur hafa tileinkað sér í fyrri áföngum í ensku og lögð áhersla á alla færniþætti tungumálanáms. Einkum verður þó lögð áhersla á að nemendur öðlist hæfni í að tjá sig á gagnrýninn hátt í ræðu og riti um viðfangsefnið. Meginmarkmið áfangans er að nemendur kynnist sögu, menningu og réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum með lestri bókmenntaverka, svo sem skáldsagna, ævisagna, æviágripa, leikrita, smásagna, greina, ljóða og dægurtexta eftir bandaríska blökkumenn. Í tengslum við lesturinn munu nemendur rýna í og vinna með heimildamyndir og/eða kvikmyndir um ævi og störf þekktra blökkumanna. Einnig verður horft á kvikmyndaaðlaganir að bókmenntaverkum blökkumanna og rýnt í tónlist blökkumanna til að mynda blues, jazz, soul, pop, reggae og rapp.
    ENSK3BR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða, hugtökum og hugmyndafræði sem einkenna menningu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú
    • sögu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú
    • menningu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú
    • réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú
    • áhrifum sögu, menningar og réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum á fjölmenningarlegt samfélag Bandaríkjanna
    • áhrifum réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum á réttindabaráttu annarra minnihlutahópa í alþjóðasamfélaginu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til fræðslu og ánægju texta sem tengjast sögu, menningu og réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú
    • gera grein fyrir viðfangsefnum sínum á lipurri og hnökralausri ensku
    • kafa dýpra ofan í viðkomandi viðfangsefni og leita fanga víðar en áður
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og geta dregið ályktanir
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um viðfangsefnið
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • öðlast heildaryfirsýn yfir sögu, menningu og réttindabaráttu blökkumanna í Bandaríkjunum fyrr og nú
    • beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum um viðfangsefnið
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum um viðfangsefnið
    • geta tjáð tilfinningar, notað hugarflug og beitt stílbrögðum í túlkun sinni á viðfangsefninu
    • skrifa texta með röksemdafærslu um viðfangsefnið þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
    Áfanginn er símatsáfangi þar sem lögð er á áhersla á ábyrgð nemandans á náminu og námsmat byggist á viðveru í tíma og auknu sjálfstæði nemandans í verkefnavinnu og vinnuskilum.