Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323777061

    Verkefnalíffræði
    LÍFF3VE05
    4
    líffræði
    verkefnalíffræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum valáfanga í líffræði fyrir náttúruvísindabraut er lögð áhersla á að nemandinn samþætti þá þekkingu og færni sem hann hefur tileinkað sér í fyrra námi, með sérstakri áherslu á líffræði. Meginmarkmið áfangans er að brjóta niður veggi milli fyrri áfanga og greina, rifja upp efni þeirra og setja það í víðara samhengi en áður hefur verið gert. Hver nemandi vinnur a.m.k. eitt stórt einstaklingsverkefni og fleiri minni verkefni ýmist einn eða í hóp. Efnisþættir eru valdir í samráði við nemendur hverju sinni.
    LÍFF2LE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sérhæfðum sviðum líffræðinnar allt eftir áhugamálum hans hverju sinni
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • gera raunhæfar áætlanir um rannsóknaraðferðir
    • greina mismunandi umfjöllun um líffræðileg efni í kennslubókum, fjölmiðlum, fræðiritum og á netinu
    • nýta sér rannsóknartæki og hugbúnað í tengslum við líffræðinám
    • nýta sér upplýsinga- og samskiptatækni
    • safna upplýsingum, vinna úr þeim og miðla til annarra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning sinn á líffræðilegum viðfangsefnum
    • geta tekið rökstudda afstöðu til dægurmála er tengjast sem flestum sviðum líffræðinnar
    • tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og sjá notagildi hennar
    • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. líffræðilegra þátta
    Símatsáfangi