Meginefni áfangans er þrívíð rúmfræði, með og án hnitakerfis og keilusnið. Helstu efnisatriði eru: Sögulegir þættir flatarmyndafræði og sannanir á nokkrum völdum reglum, fimmta krafa Evklíðs og hlutverk hennar í þróun rúmfræði, þrívíð rúmfræði, margflötungar, vigrar í þrívídd og hnit þeirra, jöfnur og stikaform sléttu, línu og ferla, lausnir á jöfnum, horna- og fjarlægðarreikningar, rúmmálsreikningar og vigurfeldi, keilusnið, jöfnur þeirra og speglunareiginleikar. Í meginatriðum er um þrenns konar kennsluhætti að ræða, þ.e.a.s. bekkjarkennslu, hópvinnu og einstaklingsvinnu. Kynning á nýju efni fer oft fram í fyrirlestrum með útskýringum en miklum hluta tímans er varið í dæmareikning sem hver og einn þarf að ná tökum á.
STÆR3FD05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sígildri rúmfræði og tamið sér stærðfræðileg vinnubrögð
keilusniðum og rúmfræðilegum eiginleikum þeirra
vigurreikningi í þrívíðu rúmi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meðhöndla punkta, línur og fleti og leysa verkefni í þrívíðri rúmfræði
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra helstu sannanir sem koma fyrir í námsefni hans
fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og leikni sem hann býr yfir
teikna skýringarmyndir til að glöggva sig á vandamálum sem fyrir liggja
nýta stærðfræðileg líkön til að fást við aðrar fræðigreinar
skilja og taka þátt í að hanna stærðfræðileg líkön sem sniðin eru að ákveðnum viðfangsefnum
skilja að það sé ekki sjálfsagt að verkefni hafi lausnir, hvorki einföld jafna né stór viðfangsefni
Námsmat er byggt á verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og/eða utan þeirra, frammistöðu í kennslustundum og árangri á skyndiprófum og skriflegu lokaprófi