Efnissvið áfangans eru mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Allt efni áfangans er undirstaða undir tölvunarfræði en einnig aðra stærðfræði. Auk dæmareiknings skulu nemendur skila a.m.k. einu samvinnuverkefni eða stuttri ritgerð um valda þætti í námsefninu eða tengdu efni. Helstu efnisatriði eru: Mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, reiknirit, raðir, jafnmunaröð, jafnhlutfallaröð, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10, leifaflokkar og aðgerðir með leifaflokkum. Í meginatriðum er um þrenns konar kennsluhætti að ræða, þ.e.a.s. bekkjarkennslu, hópvinnu og einstaklingsvinnu. Kynning á nýju efni fer oft fram í fyrirlestrum með útskýringum en miklum hluta tímans er varið í dæmareikning sem hver og einn þarf að ná tökum á.
STÆR3FD05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu mengjahugtökum, fjöldatölum og hugtakinu samstétta mengi
venslum og vörpunum
skilgreiningum á gagntækri vörpun og andhverfu vörpunar
aðferðum úr talningarfræði
helstu hugtökum og aðferðum stærðfræðilegrar rökfræði
gerð og notkun reiknirita
mengjahugtakinu og mengjareikningi
undirstöðuhugtökum talnafræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skeyta saman einföldum föllum og finna andhverfur varpana
nota þrepunarlögmálið til þess að sanna fullyrðingar um náttúrlegar tölur
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra helstu sannanir sem koma fyrir í námsefni hans
fella stærðfræðileg viðfangsefni inn í þá þekkingu og færni sem hann býr yfir
teikna skýringarmyndir til að glöggva sig á vandamálum sem fyrir liggja
nýta stærðfræðileg líkön til að fást við aðrar fræðigreinar
skilja og taka þátt í að hanna stærðfræðileg líkön sem sniðin eru að ákveðnum viðfangsefnum
skilja að það sé ekki sjálfsagt að verkefni hafi lausnir, hvorki einföld jafna né stór viðfangsefni
skilja hvaða eiginleikar talna eru háðir talnarituninni og hverjir ekki
Námsmat er byggt á verkefnum sem nemendur vinna í kennslustundum og/eða utan þeirra, frammistöðu í kennslustundum og árangri á skyndiprófum og skriflegu lokaprófi