Í áfanganum er fjallað um helstu mótunaráhrif á persónuleika fólks út frá sálfræðilegu sjónarmiði. Hugtakið persónuleiki er brotið til mergjar og ýmsir persónuleikaþættir skoðaðir sérstaklega. Þá verður fjallað um félagslega hegðun og viðhorf fólks í tengslum við samskipti sem hafa mótandi áhrif á persónuleikann. Fjallað verður sérstaklega um náin sambönd, samskipti t.d. á vinnustað og hugsanleg tengsl milli persónuleikaþátta og veikinda eða hamingju í lífinu. Áhrif netheima á þróun samskipta og persónuleikaþroska fólks eru skoðuð og nemendur fá tækifæri til að skoða sín eigin persónuleikaeinkenni og greina styrkleika sína.
SÁLF2IS05 eða fyrsti áfangi í félagsvísindum og a.m.k. einn félagsvísindaáfangi á 2. þrepi t.d. í sálfræði, félagsfræði eða uppeldisfræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
persónuleikahugtakinu og helstu mótunaráhrifum á persónuleika fólks
mismunandi nálgun sálfræðinnar á persónuleika og hegðun fólks bæði í samskiptum við umhverfi sitt og annað fólk
völdum hugtökum og kenningum innan félags- og persónuleikasálfræðinnar
framlagi félags- og persónuleikasálfræðinnar innan sálfræðinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
miðla sérhæfðri færni með því að beita almennum og sértækum vinnubrögðum, verkfærum og aðferðum félagssálfræðinnar
afla upplýsinga, greina þær og setja í fræðilegt samhengi
nýta fræðilegan texta á íslensku og erlendu tungumáli
miðla fræðilegu efni skýrt og skilmerkilega í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna úr rannsóknargögnum og leggja á þau mat
sýna frumkvæði að raunhæfum lausnum
beita skapandi hugsun við lausnamiðað nám
meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
geta tekið þátt í rökræðum um málefni sem tengjast félags- og persónuleika sálfræði