Áfanginn er samstarfsverkefni ensku-, sögu- og félagsfræðideilda. Í þessum áfanga undirbúa og skipleggja nemendur ferð til Skotlands sem væntanlega verður farin á opnum dögum á vorönn. Í áfanganum er farið í sögu, menningu og stjórnkerfi Skota. Sérstök áhersla er lögð á að nemendur greini samfélagsmynd Skotlands eftir tímabilum og öðlist þekkingu á Skotlandi, þjóðareinkennum og sjálfsmynd þjóðarinnar. Nemendur lesa heimildir, rýna í heimilda- og kvikmyndir auk þess sem þeir vinna verkefni um sögu, stjórnkerfi og menningu. Í lokin verður farin námsferð til Skotlands sem nemendur undirbúa og skipuleggja m.a. með fjáröflun fyrir ferðina. Gerðar eru strangar kröfur um mætingu og verkefnaskil. Nemendur áfangans greiða allan kostnað ferðarinnar.
ENS3A05, FÉV1A06 og SAG2A05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ýmsum sviðum og helstu áhrifavöldum í sögu og sjálfstæðisbaráttu Skota
skoska stjórnkerfinu og þróun skoskra stjórnmála
menningu, félagslegri og efnahagslegri stöðu fólks í Skotlandi með áherslu á Glasgow og Edinborg
mismunandi mállýskum í ensku
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sjá tengsl fortíðar og nútíðar og samhengið milli tímabila, svæða og sviða
afla og vinna úr heimildum um viðfangsefnið bæði á íslensku og ensku
greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt og stjórnmálalegt samhengi í bókmenntatextum
skipuleggja vettvangsferð á staði í Glasgow sem tengjast sögu, menningu og stjórnkerfi Skotlands til að kynnast þeim að eigin raun
kynna staði og/eða fyrirbæri sem tengjast sögu, menningu og stjórnkerfi Skotlands fyrir öðrum
átta sig á mismunandi mállýskum í ensku í töluðu og rituðu máli
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta hlustað á talað mál og skilið merkingu þess
geta hlustað á og lesið ensku og skilið merkingu málsins
hafa trú á eigin málkunnáttu í ensku
geta tekið þátt í skoðanaskiptum og rökræðum um sögu, menningu og stjórnkerfi Skotlands
koma þekkingu sinni og skilningi á framfæri með fjölbreyttum hætti bæði á íslensku og ensku
leggja mat á eigin frammistöðu og annarra í verkefnavinnu