Orðaforði, menning og saga spænskumælandi landa, lesskilningur, tal, hlustun og ritun
SPÆN1OM05
1
spænska
hlustun og ritun, lesskilningur, menning og saga spænskumælandi landa, orðaforði, tal
Samþykkt af skóla
1
5
Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu og sögu spænskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð. Nemendur þurfa í auknum mæli að tjá sig munnlega og textar verða smám saman lengri og þyngri. Viðfangsefni tengjast m.a. daglegu lífi og liðnum atburðum.
SPÆN1TH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
helstu grundvallarþáttum spænska málkerfisins
spænskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnleg efni þegar talað er skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar, fyrirmæli og stuttar frásagnir
lesa einfalda texta af ýmsu tagi og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
geta tjáð sig á einfaldan hátt um tilfinningar og viðhorf
geta sagt einfalda sögu og lýst liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
skrifa stutta texta í nútíð og þátíð (núliðinni tíð), svo sem einföld persónuleg bréf, skilaboð, boðskort og samtöl
nýta sér ýmis hjálpargögn í spænskunáminu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja talað mál um kunnugleg efni
skilja meginatriði texta sem innihalda algengan orðaforða, m.a. í blöðum og tímaritum
tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
skrifa einfalda texta um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu