Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1327324903

    Þrívíð rúmfræði
    STÆR3RÚ05
    4
    stærðfræði
    rúmfræði, þrívídd
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Meginefni áfangans er þrívíð rúmfræði, með og án hnitakerfis og keilusnið
    STÆR3HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum og viðfangsefnum í tvívíðu og þrívíðu hnitakerfi
    • margflötungum
    • hornum og lengdum í þrívíðu rúmi
    • vigurreikningi í þrívíðu rúmi
    • keilusniði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með helstu hugtök og viðfangsefni í tvívíðu og þrívíðu hnitakerfi
    • finna allar stærðir horna og lengda í reglulegum margflötungum
    • reikna stærðir horna og lengdir strika í þrívíðu rúmi
    • reikna með vigurreikningi í þrívíðu rúmi
    • vinna með keilusnið og jöfnur hrings, sporbaugs og breiðboga
    • beita hjálpartækjum og forritum við lausn verkefna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta skráð lausnir sínar skipulega, skipst á skoðunum við aðra um þær og útskýrt á viðeigandi hátt
    • beita skipulegum aðferðum við leit að lausnum á þrautum og geti útskýrt aðferðir sínar
    • geta unnið með merkingu og tengsl hugtaka í rúmfræðinni
    • gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausnum verkefna
    • beita gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
    • fylgja og skilja röksemdafærslur í mæltu máli og í texta
    • rekja sannanir í námsefninu
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og velja aðferð við hæfi
    Lögð er áhersla á fjölbreytt námsmat. Vinna nemenda í kennslustundum er metin, lögð eru fyrir hlutapróf og verkefni. Lokapróf er í áfanganum.