Veður- og veðurfarsfræði, loftslagsmál í erlendu samstarfi
VEÐU3VL05
1
veðurfræði
loftslagsmál í erlendu samstarfi, veður- og veðurfarsfræði
Samþykkt af skóla
3
5
Efna- og orkubúskapur loftshjúps jarðar, loftþrýstingur, vindar, geislun, úrkoma. Veður, veðrakerfi og veðurfar. Veðurkort og veðurspár, hæðir og lægðir. Veðurfarsleg fyrirbæri s.s. þrumur og eldingar, skýstrokkar, fellibyljir og stormar. Loftslagsbreytingar og áhrif mannsins. Loftslags- og gróðurbelti jarðar. Efnaskipti lofts og sjávar. Samspil veðrakerfa og hafstrauma. Nemendur taka þátt í alþjóðlegu samstarfsverkefni um loftslagsmál „Youthinkgreen“ þar sem unnin eru verkefni og leyst viðfangsefni sem tengjast loftsmálum og sjálfbærum lausnum á alþjóðavettvangi. Verkefni eru unnin með hjálp margmiðlunar og sumt af því sem hópurinn vinnur er sett á heimasíðu samtakanna „Youthinkgreen“. M.a. munu nemendur vinna video-blogg auk hefðbundnari verkefnaskila. Nemendur taka þátt í fjögurra daga vinnubúðum þar sem loftslagsbreytingar af manna völdum eru til umfjöllunar. Vinnubúðirnar eru skipulagðar af „Youthinkgreen“ og miða að því að búa nemendur undir að kynna hugmyndir og lausnir á loftslagsvanda á alþjóðavettvangi og nota til þess nútímamiðla, s.s. internet , á skapandi hátt. Einnig stendur nemendum til boða að taka þátt í vettvangsferð til Þýskalands þar sem farið verður í kynnisferðir í bílaverksmiðjur, stofnanir og fyrirtæki sem vinna að sjálfbærum lausnum á loftslagsvanda af mannavöldum. Gert er ráð fyrir að farið verði í nokkrar heimsóknir og námskynningar í stofnanir innanlands. Kennsluaðferðir miða að því að auka sjálfstæði og ábyrgð nemenda á eigin námi og virkja sköpunargáfu þeirra í margvíslegum og ólíkum viðfangsefnum. Nemendur velja verkefni og vinna sjálfstætt einir eða í hóp. Auk þess sem nemendur vinna mánaðarleg verkefni á vegum „Youthinkgreen“. Verkefni miða að því að auka skilning og áhuga nemenda á veðurfari, umhverfi og náttúru hér heima og setja þau í samhengi við sameiginlega vegferð jarðarbúa.
JARÐ1AJ05, EFNA1FH03, UMHV2UM05, STÆR2FH05, STÆR2GN05, ENSK2E105 eða sambærilegir áfangar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
viðfangsefnum veðurfræðinnar og hagnýtingu
aðferðum, mælitækjum og einingum sem notuð eru í veðurfræði
efnasamsetningu, lagskiptingu og eðliseiginleikum lofthjúps jarðar
loftþrýsingi og hreyfingu loftmassa, mælingum, nýtingu og einingum
vindakerfi jarðar og vindafari á Íslandi
skýjaflokkun, skýjum í lægðum og hæðum
veðurkortagerð, táknum og tækjum, veðurspám
árstíðum, orsökum og samhengi við veðurfar
ýmsum veðurfarslegum fyrirbærum
loftslagsbeltum jarðar
hafstraumum
hringrásum efna í vistkerfum jarðar
loftmengun og breytingum á loftslagi
loftslagsbreytingum af manna völdum
sjálfbærni og lausnum sem miða að minnkun gróðurhúsaáhrifa
alþjóðlegum samþykktum og ráðstefnum sem fjalla um loftslagsmál
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skipuleggja úrlausn verklegra æfinga sem tengjast veðri og umhverfi
skrá skipulega og greina mæliniðurstöður
lesa úr veðurkortum
greina ský og nýta skýjamyndanir til að segja til um veður
gera grein fyrir loftslagsbreytingum af mannavöldum á opinberum vettvangi
taka upp kynningarefni á myndbandsvél, klippa og setja saman
setja kynningarefni á netið (video-blogga)
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
lesa af mælitækjum sem notuð eru til veðurmælinga og túlka
spá fyrir um veður af nokkru öryggi
sjá samhengi og áhrif lifnaðarhátta á loftslag
leggja mat á upplýsingar um veðurfyrirbæri
meta mögulegar veðurfarslegar ógnir
leggja mat á veðurfræðilegar upplýsingar sem nýtast í daglegu lífi
meta fjölbreytni íslensks veðurfars
koma fram fyrir hóp af fólki og gera grein fyrir þekkingu sinni og skoðunum á loftslagsmálum bæði á íslensku og ensku
taka þátt í upplýstri umræðu um sjálfbærni og loftslagsmál
nýta skapandi eiginleika til að útskýra og koma á framfæri upplýsingum um sjálfbærni og loftslagsbreytingar af manna völdum
vinna í hóp með fólki hvaðanæva að úr heiminum að skapandi lausnum á vandamálum tengdum loftslagsbreytingum af mannavöldum