Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329389932

    Inngangur að lögfræði
    LÖGF1SV04
    1
    lögfræði
    stjórnarfar, stjórnskipun, vinnumarkaður, viðskipti
    Samþykkt af skóla
    1
    4
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur kynnist lögfræði sem fræðigrein. Fjallað verður um stjórnskipun og stjórnarfar. Farið verður í samningagerð ásamt kröfum og skuldbindingum. Einnig verður fjallað um kaup og sölu, á vörum og þjónustu og að lokum verður farið í helstu réttindi og skyldur vinnumarkaðins. Reynt verður að tengja námsefnið við umræður líðandi stundar í þjóðfélaginu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stjórnskipan og stjórnarfari á Íslandi
    • grunnþáttum í samningagerð
    • réttindum sínum og skyldum sem kaupandi og seljandi á vöru og þjónustu
    • réttindum sínum og skyldum á vinnumarkaði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • útskýra stjórnskipan og stjórnarfar
    • þekkja grunnþætti í samningagerð
    • vinna með helstu lög og reglur um réttindi og skyldur kaupanda og seljanda á vöru og þjónustu
    • þekkja og vinna með helstu lög og reglugerðir á vinnumarkaði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina frá grunnþáttum í stjórnaskrá og stjórnskipan Íslandi
    • vitnað í helstu lög og reglur um réttindi og skyldur kaupanda og seljanda á vöru og þjónustu
    • gera sér grein fyrir réttindi sínum og skyldum á vinnumarkaði
    Námsmatið er tvíþætt. Nemendur þreyta próf í tímum og senda inn skilaverkefni. Meðaleinkunn fyrir hvern og einn af þessum tveimur þáttum þarf að vera minnst 4.5 til þess að standast áfangann.