Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
lífefnafræði
Farið í undirstöðuatriði í lífefnafræði, helstu efnaferla frumunnar, t.d. sítrónusýruhringurinn og áhrif eiturefna á þessa ferla.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- uppbyggingu og mismunandi gerðum kolvetna, lípíða og próteina.
- kjarnsýrum, ensímum og hlutverki þeirra.
- ATP og hlutverki þess í líkamanum.
- helstu efnaferlum við niðurbrot orkuefna og nýtingu þeirra í líkamanum.
- eiturefnum og áhrifum þeirra á efnaferla líkamans.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- teikna upp og skilja uppbyggingu próteina, sykra, lípíða og kjarnsýra.
- lesa úr myndum af efnaferlum og efnahringrásum.
- útskýra helstu efnaferli líkamans.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- sjá tengsl milli náttúrufræðigreina og geta yfirfært þekkingu milli þeirra.
- sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu.
- tengja efnafræðina við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar.
Verkefni og próf.