Fjallað um eiginleika vökva, fastra efna og lausna,efnafræði málma, málmleysingja og hliðarmálma.Lokaverkefni í efnafræði. Nemendur setja upp eigin tilraun, vinna úr niðurstöðum hennar og skrifa vísindaskýrslu.
EFNA3FE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
uppröðun sameinda í vökvum og föstum efnum.
hegðun efna í lausnum og áhrif uppleystra efna á eiginleika lausna.
efna- og eðlisfræðilegum eiginleikum málma og notagildi ýmissa málma.
efna- og eðlisfræðilegum eiginleikum málmleysingja og notagildi ýmissa málmleysingja.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa úr fasalínuritum.
reikna orkubreytingar tengdar fasabreytingum.
vinna upplýsingar úr vísindatexta.
kynna rannsóknir sínar fyrir öðrum.
vinna sjálfstætt við uppsetningu og framkvæmd tilrauna.
vinna úr eigin rannsóknarniðurstöðum og setja þær fram.
miðla þekkingu sinni til annarra.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa ítarlegar vísindaskýrslur.
nýta sér fræðilegan texta og gögn á markvissan hátt.
meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt.
leggja mat á áreiðanleika niðurstaðna rannsókna sinna og annarra.
taka ákvarðanir, mynda sér skoðanir og taka þátt í umræðum sem byggja á þekkingu í efnafræði.
öðlast yfirsýn yfir efnafæðina sem grein.
takast á við frekara nám í efnafræði og tengdum greinum á háskólastigi.