Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1331976025

    Samtímalist
    LIST2SA05
    1
    listasaga
    samtímalist
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum verður listasaga Vesturlanda frá popplist til dagsins í dag kennd. Fjallað verður meðal annars um popplist, minimalisma, hugmyndalist og póstmódernisma. Nemendur vinna fjölbreytt verkefni sem tengjast stíltímabilum, leita upplýsinga og ítarefnis í ólíkum miðlum og kynna rannsóknarniðurstöður fyrir samnemendum sínum. Farið verður á myndlistarsýningar þar sem nemendur kynnast því sem boðið er upp á í samtímamyndlist í sýningarsölum höfuðborgarsvæðisins og verkefni unnin í tengslum við vettvangsferðirnar. Nemendur verða þjálfaðir í vinnu verkefna um sögu og sögulega þróun með því að greina atburði og hugmyndir á tímabilinu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu einkennum myndlistar síðustu 60 ára
    • nöfnum og verkum helstu myndlistarmanna á tímabilinu
    • hvernig verk myndlistarmanna geta verið ólík þótt þau tilheyri sama stíl
    • hvernig myndlist einstakra myndlistarmanna breytist með tíma og breyttum viðhorfum
    • hvernig samfélagsgerð og tíðarandi hefur áhrif á hugmyndir, viðfangsefni og útfærslu verka myndlistarmanna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • miðla sögulegri þekkingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bera saman, finna tengsl, einfalda og draga ályktanir af listasögunni og þróun hennar ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    • vinna sjálfstætt og setja fram sögulegar greiningar ...sem er metið með... verkefnum,prófum og munnlegri framsögn
    • vinna skipulega með sögulegan texta og setja fram á rökrænan hátt ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    • greina sögulega þróun myndlistar og samhengi hennar ...sem er metið með... verkefnum og prófum
    Námsmat byggir á verkefnum, ástundun og þátttöku í umræðum og lokaprófi.