Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1337094898

    Eddukvæði og íslendingasögur
    ÍSLE2ED05
    20
    íslenska
    eddukvæði og íslendingasögur
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga vinna nemendur einkum með íslenskar fornbókmenntir þar sem Snorra-Edda, Eddukvæði og Laxdæla saga verða meginviðfangsefni áfangans. Einnig verða sérstök verkefni þar sem lögð er áhersla á að vinna með margvíslegar heimildir á faglegan hátt. Verkefnavinna áfangans gengur út á að efla hæfni nemenda í að vinna með sjálfstæðum hætti verkefnum sínum sem og að taka þátt í umræðum í tímum um þau viðfangsefni sem eru til umfjöllunar hverju sinni. Jafnframt er markmiðið að efla ábyrgðartilfinningu nemenda gagnvart sjálfum sér, námi sínu og umhverfi. Bókmenntir og læsi: Nemendur kynna sér þann heim og hugmyndafræði sem finna má í íslenskum og norrænum fornbókmenntum með því að lesa og vinna krefjandi verkefni úr efni áfangans. Ritun: Nemendur eru þjálfaðir í að vinna úr lesefni áfangans með fjölbreyttum ritunarverkefnum. Nokkur áhersla er á skapandi verkefni í þessum áfanga – bæði hópverkefni sem og einstaklingsverkefni. Í vinnum með efni úr fornsögunum verður sjónum meðal annars beint að því hvernig hugtökin lýðræði, mannréttindi og jafnrétti birtast nemendum í sögunum, ekki síst út frá því hvernig nemendur skynja þessi hugtök á okkar tímum. Verður lögð áhersla á umræður í tímum um þessi hugtök sem og sérstök verkefni sem nemendur vinna út frá þessum hugtökum.
    Bókmenntir, málnotkun og ritun - ÍSLE2MR05 (ÍSL2A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • íslenskum og norrænum fornbókmenntum
    • helstu hugtökum í ritgerðasmíð
    • grundvallarvinnubrögðum við skrif heimildaritgerða
    • málfræðihugtökum og ritreglum sem nýtast í tal- og ritmáli.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • rita rökfærsluritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og kemur skoðunum sínum á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang ritsmíða
    • draga saman og nýta upplýsingar úr ýmiss konar heimildum og flétta saman við eigin viðhorf og ályktanir á heiðarlegan hátt
    • lesa sér til gagns og gamans nytjatexta og bókmenntaverk frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið og sýna töluverð tilbrigði í málnotkun
    • beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
    • taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
    • túlka texta þó merkingin liggi ekki á yfirborðinu.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.