Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1337165479

    Heimspeki: byrjunaráfangi í heimspeki
    HEIM2BY05
    6
    heimspeki
    byrjunaráfangi í heimspeki
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Er guð til? Af hverju er til eitthvað frekar en ekkert? Hvernig vitum við að veruleikinn er eins og hann birtist okkur? Hvað er þekking? Hvað er sannleikur? Hvað er vitund? Í áfanganum verða teknir fyrir valdir þættir í vestrænni heimspekisögu frá Grikklandi til forna fram að lokum 20. aldar. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist undirstöðuþekkingu í þróun heimspeki í gegnum mannskynssöguna ásamt grundvallarskilningi á helstu heimspekikenningum sem hafa mótað viðhorf mannsins til siðferðis, frelsis, guðs og eðli heimsins í kringum hann. Ásamt völdu lesefni verður notast við bíómyndir, tónlist og myndbrot úr dægurlífinu. Áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og sjálfstæð vinnubrögð, nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf. Mikil áhersla verður lögð á umræður í tímum og því er góð mæting mjög mikilvæg. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn nýrra viðfangsefna.
    Undanfari: ÍSL2A05 - ATH nýtt nafn
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • völdum heimspekingum og heimspekikenningum frá Forn Grikklandi til okkar tíma
    • mikilvægi gagnrýnnar hugsunar
    • undirstöðuatriðum heimspekilegrar hugsunar
    • lestri heimspekitexta
    • heimspekilegum samræðum.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa heimspekitexta
    • endursegja og skýra heimspekilega texta
    • beita gagnrýnni hugsun
    • meta eigin rök og annarra
    • tjá sig heimspekilega og hlusta á aðra
    • tengja heimspeki við eigin reynslu og veruleika.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta miðlað torskildum fróðleik á skýran hátt
    • geta beitt gagnrýnni hugsun á markvissan hátt á öllum sviðum lífsins
    • geta borið saman ólíkar skoðanir og rök til að komast að sameiginlegri niðurstöðu
    • geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissari hátt
    • skilja betur heiminn og samfélagi sem hann býr í
    • beita heimspekilegum hugmyndum til þess að leysa úr siðferðislegum vandamálum.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.