Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1339667360

    Tjáskipti barna og fullorðinna,
    ÍSLE3TB05
    20
    íslenska
    tjáskipti barna og fullorðinna
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður farið í ýmislegt sem tengist tjáskiptum barna og fullorðinna. Skoðað verður hver sé munurinn á tjáningu dýra annars vegar og mannsins hins vegar. Fjallað verður um það hvernig börn læra að tala og hvernig menn fara að því að rannsaka það ferli. Einnig verður farið í mál mismunandi hópa, til að mynda hvort kynin tjái sig á ólíkan hátt, hvort ungmenni orði hlutina öðruvísi en fullorðnir og hvort mismunandi aðstæður og stéttaskipting hafi áhrif á það hvernig fólk talar. Auk þess skoða nemendur hvort málsnið og málfar á netinu sé á einhvern hátt öðruvísi en í raunheimum. Fjallað verður um það hvernig táknmál er byggt upp og hvort heyrnarlausir hafi sömu möguleika á að tjá sig og heyrandi fólk. Skoðað er hvað gerist þegar málstöðvarnar í heilanum skaðast, t.d. við heilablæðingu. Loks er fjallað um hvaða aðferðir fólk hefur til að tjá sig með líkama og svipbrigðum þegar það hefur samskipti í gegnum netið. Stefnt er að því að nemendur rannsaki eitthvert tiltekið atriði í máli barna og/eða fullorðinna.
    ÍSLE2MN05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim hæfileika sem maðurinn hefur til að nema mál
    • helstu stigum máltökunnar
    • ýmsu er varðar mismunandi málnotkun fólks
    • ýmsum tal- og málmeinum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • átta sig á mismunandi málsniði
    • átta sig á þeim mun sem getur verið á máli mismunandi hópa
    • skoða hvað getur talist rétt og rangt mál
    • vinna úr gögnum sem taka til máltöku barna og/eða málnotkunar mismunandi hópa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • verða víðsýnn í umræðum um mál og málsnið
    • nota ýmsar aðferðir til að skoða félagslegar hliðar málsins
    30% lokapróf og 70% vinnueinkunn