Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329214381

    Grunnáfangi í stærðfræði
    STÆR2GR06
    15
    stærðfræði
    grunnáfangi í stærðfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Grunnur lagður að vinnubrögðum í stærðfræði og byggt er ofan á grunn sem nemendur hafa lært í grunnskóla. Efni áfangans er talnareikningur, algebra, jöfnur, rúmfræði, hnitakerfi og föll ásamt tölfræði.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • uppsetningu og lausn á jöfnum og formúlum
    • ýmsum reglum og beitingu þeirra t.d Pýþagorasreglan
    • talnahlutföllum, prósentum og vöxtum
    • frumhugtökum rúmfræðinnar
    • hnitakerfi, hallatölum, skurðpunktum og öðru sem því tengist
    • einslögun, hlutföllum og hornaföllum í rétthyrndum þríhyrningi
    • helstu grunnhugtökum í tölfræði
    • notkun og úrvinnslu ýmissa tölfræðigagna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja upp og leysa jöfnur og formúlur
    • nota mismunandi reglur stærðfræðinnar þegar við á
    • vinna með hlutföll, prósentur og vexti
    • nýta sér tugveldisrithátt og mælinákvæmni til að bera saman tölur
    • vinna með frumhugtök rúmfræðinnar
    • vinna með og leysa ýmis dæmi tengd þríhyrningum
    • vinna úr og nýta tölfræðigögn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita jöfnum og formúlum á réttan hátt við lausn ýmissa verkefna
    • beita hlutfallareikningi við lausn raunverulegra verkefna.
    • nýta sér frumhugtök rúmfræðinnar í daglegu lífi
    • nýta sér hornafallareikning í praktískum tilgangi
    • nota tölfræði í tengslum við raunveruleg úrlausnarverkefni
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Meðaltal skilaverkefna t.d heimadæma (30%) Meðaltal kaflaprófa (50%) Meðaltal smærri verkefna (skila- og tímaverkefna (15%) Mat kennara á vinnu nemenda, vinnubrögðum og framförum (5%)