Stjórnmálafræðin kynnt sem fræðigrein Farið er yfir helstu hugmyndafræði, íslensk stjórnmál, Alþingi, íslenska stjórnmálaflokka, alþjóðastjórnmál og áhrif fjölmiðla. Farið verður yfir ágreiningsmál og helstu mál sem eru efst á baugi hverju sinni.
Að nemandi hafi lokið áfanganum FÉLA2AK06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stjórnmálum á Íslandi
helstu deilumálum dagsins
alþjóðastjórnmálum
stjórnmálum í nágrannalöndunum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
ræða og fjalla um stjórnmál
rökstyðja skoðanir sínar á samfélagslegum málefnum
tjá afstöðu sína til tiltekinna mála
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna félagsfræðilega rannsókn á stjórnmálum
kunna skil á stefnum, áhrifum, þróun og sveiflum í íslenskum stjórnmálum
mynda sér skoðanir á rökstuddan, meðvitaðan og gagnrýninn hátt
bera virðingu fyrir skoðunum og lífsgildum annarra
geta komist að sameiginlegri niðurstöðu í deilumálum við þann sem deilt er
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru eftirfarandi þættir:
Frammistöðumat: 10%
Verkefni frá kennara: 40%
Verkefni sem nemendur ákvarða: 20%
Rannsóknarverkefni: 30%