Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329305379

    Inngangur að uppeldis- og menntunarfræði
    UPPE2UM06
    3
    uppeldisfræði
    uppeldis- og menntunarfræði - inngangur
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Þetta er grunnáfangi í uppeldisfræði og er ætlaður til kynningar á fræðigreininni uppeldis- og menntunarfræði. Fjallað er um rætur fræðigreinarinnar, sögu og hagnýtingu. Hugtakið uppeldi tekið til umræðu og gildi uppeldis fyrir einstakling og samfélag. Nemendur kynnast hugmyndafræði og uppeldisaðferðum nokkurra þekktra uppeldisfræðinga sem hafa haft áhrif á uppeldis- og skólastarf á Vesturlöndum, eins og t.d. Dewey og Vygotsky.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróun fræðigreinarinnar uppeldis- og menntunarfræði
    • grundvallarhugmyndum nokkurra viðurkenndra uppeldisfræðinga
    • leiðum uppeldisfræðinnar til að útskýra þroskaferil barna
    • ólíkum uppeldisaðferðum
    • niðurstöðum rannsókna á mismunandi uppeldisaðferðum foreldra
    • hagnýtu gildi uppeldis- og menntunarfræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja umfjöllun um mismunandi uppeldishugmyndir
    • beita hugökum uppeldisfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt
    • jákvæðum og uppbyggilegum samskiptum
    • skoða sína eigin hugmyndir um uppeldi
    • setja fram spurningar og taka þátt í umræðu um uppeldismál
    • tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir ólíkum þörfum, hegðun, hugarástandi og tilfinningalífi barna við ýmsar uppeldisaðstæður ...sem er metið með... umræðum um tiltekin dæmi og verkefnum um þau
    • meta gildi jákvæðra og uppbyggilegra samskipta ...sem er metið með... verkefnum og hlutaprófum, auk umræðna
    • afla sér upplýsinga um uppeldis- og menntamál, greina aðalatriði þeirra og nýta sér til frekari vinnslu ...sem er metið með... stærri verkefnum sem unnin eru í hópum
    • vinna sjálfstætt og í lýðræðislegri samvinnu við aðra á gagnrýninn hátt ...sem er metið með... einstaklings- og hópaverkefnum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Vikuleg verkefni, samtals 85%; heimsókn í leikskóla (hópverkefni) 10%; ástundun og skilvísi 5%.