Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1352799166

    Íþróttafræði-þjálfun barna
    ÍÞRF1ÞÞ06
    3
    íþróttafræði
    þjálfari - almennur hluti, þjálfun barna
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemendur fá undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við íþróttameiðslum. Farið verður yfir upphitun bæði almenna og sérhæfða Fjallað er um mataræði íþróttamanna og áhrif fíkniefna á afkastagetu og árangur. Einnig er lögð áhersla á að nemendur læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemendur þjálfast í stjórnunarstörfum, s.s. að sjá um fundarsköp, stjórna fundum og skrásetja fundargerðir, læra um helstu hlutverk stjórnarmanna eins og hlutverk formanns, varaformanns, gjaldkera, ritara og meðstjórnenda. Nemendur læra um mikilvægi stefnumótunar og skrásetningar markmiða í félagsstarfi, um uppbyggingu félaga og kynnist skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Nemendur fái að kynnast ýmsum þáttum í almennu félagsstarfi, s.s. skipulagi og undirbúningi ferða, fararstjórn og stjórnun kvöldvöku. Í áfanganum er einnig komið inn á samskipti heimila og frjálsra félaga, jafnrétti, vímuvarnarstefnu íþróttafélaga.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki þjálfara í íþróttum
    • að skipuleggja þjálfun og markmið hennar
    • helstu þroskaþáttum barna
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • tilgang upphitunar
    • uppbyggingu frjálsra félagasamtaka
    • hlutverki helstu stjórnenda félaga
    • starfsemi íþróttafélaga, sérgreina- og fjölgreinafélaga
    • mikilvægi samvinnu og hópstarfs í frjálsum félagasamtökum
    • gera sér grein fyrir hlutverki sínu sem fyrirmynd
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja einstakar æfingastundir
    • greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
    • nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
    • rita fundargerðir
    • stjórna fundum og framsögn
    • Tímaseðlagerð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta stjórnað æfinga tíma barna með þroska þeirra í huga
    • geta stjórnað upphitun fyrir alla aldurshópa
    • geta útbúið tímaseðla
    • geti skipulagt þjálfun til skemmri og lengri tíma
    • geti stjórnað fundum
    • geti skipulagt keppnisferðalag með börnum
    • geti skipulagt mataræði með það að markmiði að ná árangri í íþróttum
    Próf 40% Tímaverkefni/Heimaverkefni 50% ástundun og vinna í tímum 10%