Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum undirstöðuatriði í knattspyrnu. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni og leikfræði fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikurinn sé greindur sundur í stuttar einingar, leikæfingar. Nemendur þjálfist í kennslu knattspyrnu. Áfanginn er bóklegur og verklegur. Áfanginn samsvarar sérgreinahluta Þjálfara 1 í fræðslukerfi ÍSÍ.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
að leiðbeina börnum á mismundandi aldri í knattspyrnu
kennslu í knatttækni
kennslu leikfræðinnar
skipulagi á þjálfun fyrir börn og unglinga
leikreglum
helstu þjálfunaraðferðir
mikilvægi á fjölbreyttum tækni- og leikæfingum í knattspyrnu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Búa til tímaseðla fyrir mismunandi aldur knattspyrnu iðkanda
beita flautu og dæma knattspyrnu
beita mismunandi þjálfunaraðferðum með ákveðin markmið að leiðarljósi svo sem þol, kraft og tækni
samskiptum við foreldra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta þjálfað ýmsa aldurshópa í knattspyrnu
geta búið til tímaseðla, vikuáætlun og mánaðaráætlun með ákveðinn aldur í huga
geta kennt börnum rétta knatttækni
geta beitt fjölbreyttum aðferðum við knattspyrnuþjálfun
geta dæmt knattspyrnuleik
Próf 30%, verkleg kennsla 30%, mæting og virkni 40%