Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353411728

    Grunnatriði í dönsku máli
    DANS2LH06
    9
    danska
    hlustun, lestur, ritun, talað mál
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur séu færir um að skilja allt venjulegt talað og ritað mál almenns eðlis. Dönsk menning er kynnt og áhugi á henni vakinn. Áhersla er lögð á að orðaforði og lesskilningur nemenda verði aukinn, svo og að þeir geti tjáð sig af lipurð munnlega og skriflega. Nemendur eru þjálfaðir í framburði og réttritun og læra að beita algengustu framburðar- og málfræðireglum. Nemendur fá þjálfun í að nota hjálpargögn og kennsluforrit í námi sínu.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu einkennum danskrar tungu í framburði og rituðu máli
    • orðabókum og upplýsingasíðum
    • dönsku máli, danskri menningu og tengslum Íslands og Danmerkur
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • hlusta á danskt mál eins og það kemur fyrir þegar skýrt er talað, t.d. í kvikmyndum og í sjónvarpsfréttum
    • taka þátt í samræðum á dönsku
    • lesa fjölbreyttra texta á dönsku
    • tjá hugsanir sínar á dönsku, skriflega og munnlega og nota til þess algeng orð og orðasambönd í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja allt venjulegt talað mál þegar skýrt er talað
    • skilji inntak ritmáls og talmáls um efni sem hann þekkir til eða hefur áhuga á og geti aflað sé upplýsinga um tiltekin efni á dönsku
    • tjá sig um almenn málefni og málefni sem hann þekkir vel, á skiljanlegri dönsku, bæði munnlega og skriflega og nota til þess málfar við hæfi
    • geti tekið þátt í samræðum á dönsku um almenn málefni
    Námsmat er símat sem nær yfir alla önnina. Skilningur er metinn með hlustunar- og lesskilnings verkefnum, tal er metið með samtalsæfingum og munnlegum prófum og nemendur skila skriflegum verkefnum. Miðað er við að nemandi hafi náð þeirri færni sem svara til færnirammans B1 samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni (ETM). Nemendur nota þennan ramma til að meta eigin framfarir.