Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353333287

    Næringarfræði-grunnáfangi
    NÆRI2NÆ05
    3
    næringarfræði
    næringarfræði - grunnáfangi
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er fjallað um næringarefnin, hlutverk þeirra, skortseinkenni og ráðlagða dagskammta. Ráðleggingar Lýðheilsustöðvar um mataræði og næringarefni eru kynntar og nemendum kennt að setja saman matseðla og dagsfæði samkvæmt þeim. Nemendur læra að notfæra sér næringarefnatöflur/næringarfræðiforrit og reikna út næringargildi matseðla. Fjallað er um flokkun fæðutegunda og næringargildi þeirra, áhrif matreiðslu á næringargildi og uppbyggingu máltíða. Fjallað er um næringarþarfir mismunandi hópa. Gerð er grein fyrir gildandi lögum og reglugerðum um notkun aukefna í matvælum og vörumerkingum matvæla.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu næringarefnin í matnum og vita hvar þau er að finna.
    • Ráðleggingum Lýheilsustofnunnar um næringu.
    • Lög og reglur um aukaefni og vörumerkingar matvæla
    • Innihaldslýsingar á umbúðum utan um neysluvörur.
    • Næringarþörfum sérstakra hópa.
    • Næringarfræðiforritum/næringartöflum til að reikna út næringargildi einstakra fæðutegunda og fæðisins í heild.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Lesa næringargildi einstaka matarteguna
    • Lesa og nýta sér upplýsingar á matarumbúðum
    • Nota næringarforrit
    • Reikna út næringargildi matvæla eftir næringartöflum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta valið sér fæðu samkvæmt ráðleggingum Lýheilsustofnunnar.
    • Geta reiknað út næringargildi máltíða og dagsfæðis.
    • Geta sett saman hollan dagsmatseðil.
    • Geta lesið innihaldslýsingar á umbúðum utan um neysluvörur.
    • Vera fær um að nota næringarfræðiforrit til að reikna út næringargildi einstakra
    Próf 30%, Tíma og heimaverkefni 60%, mætingar og áhugi 10%