Markmið áfangans er að nemendur geti notað dönsku til samskipta við Dani og aðra Norðurlandabúa sem og að lesa sér til gagns texta um ýmis efni á dönsku.
Nemendur æfa jöfnum höndum hlustun, tal, lestur og ritun. Læsi er þjálfað með því að lesa fjölbreytta texta, ýmist prentaða eða af veraldarvefnum. Þá þjálfast nemendur í að hlusta á talað mál af ýmsum miðlum. Nemendur æfa samtöl sín á milli og við kennara. Nemendur þjálfast í að tjá sig á dönsku, skriflega og munnlega.
Nemendur hafa talsvert val um hvaða efni þeir vinna með, en einnig er lögð áhersla á að efla samvinnu nemenda og þeir fá þálfun í að meta eigin framfarir. Nemendum gefst kostur á að sýna hæfni sína með fjölbreyttum verkefnaskilum. Kennsla fer fram á dönsku að miklu leyti.
DANS2LH06
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Dönsku máli, danskri menningu og tengslum Íslands og Danmerkur
Helstu einkennum danskrar tungu í framburði og rituðu máli
Skyldleika Norðurlandamálanna
Helstu hjálpargögnum, orðabókum, þýðingarvélum, uppsláttarritum og kennsluforritum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
hlusta á danskt mál og skilja meginmál t.d. í fréttum og í leiknu efni
lesa sér til gagns texta um margvísleg málefni
tjá hugsanir sínar á dönsku, skriflega og munnlega
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja allt venjulegt talað mál í samtali og í fjölmiðlum og átti sig á inntaki þess
skilji inntak ritmáls um almenn og sérhæfð efni sem hann þekkir til eða hefur áhuga á, geti lesið og skilið bókmenntatexta
tjá sig um almenn málefni á skiljanlegri dönsku, bæði munnlega og skriflega
geti notað dönsku í samskiptum við Dani, og að einhverju leyti í samskiptum við aðra Norðurlandabúa
Námsmat er símat sem nær yfir alla önnina. Það byggist á skriflegum verkefnum og prófum, kynningum nemenda og samtölum og umræðum. Skilningur er mældur með hlustunar- og lesskilnings verkefnum, framsögn með kynningum nemenda og færni í samskiptum með samtalsæfingum. Miðað er við að nemandi hafi náð þeirri færni sem svara til færnirammans B2 samkvæmt Evrópsku tungumálamöppunni (ETM). Nemendur nota þennan ramma til að meta eigin framfarir.