Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329215698

    Stærðfræði - hornaföll og vigrar
    STÆR3HO06
    19
    stærðfræði
    hornafræði, vigrar
    Samþykkt af skóla
    3
    6
    Áhersla er lögð á hornaföll en jafnframt eru önnur lotubundin föll kynnt. Bogamál og vigrar eru teknir til skoðunar. Fjallað er um undirstöðuatriði talningarfræði, mengja og yrðingarökfræði.
    Að nemandi hafi lokið áfanganum STÆR2JF06
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • lotubundnum föllum og hornaföllum
    • undirstöðureglum talningarfræðinnar, tvíliðustuðlum og Pascalsþríhyrningnum
    • jöfnum hrings og sporbaugs
    • hornafræði þríhyrninga, stefnuhorni línu, sínusreglu, kósínusreglu og flatarmálsreglu
    • almennri skilgreiningu hornafalla, bogamáli og umritunarreglum hornafalla
    • vigurreikningi í sléttum fleti, summu, mismun og innfeldi tveggja vigra og lengd vigurs, horni milli vigra og hjá samsíða og hornréttum vigrum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • leysa hornafallajöfnur og ójöfnur
    • þekkja jöfnur keilusniða
    • reikna með vigrum
    • meðhöndla hornaföll og hornafallareglur
    • leysa talningarfræðileg vandamál
    • meðhöndla lotubundin föll og gröf þeirra, finna t. d. lotu og útslag
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum
    • útskýra hugmyndir sínar og verk á skilmerkilegan hátt
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstimann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Meðaltal tímaverkefna og prófa (50%) Meðaltal skilaverkefna (40%) Vinnusemi, ástundun og framfarir (10%)