Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353577314

    Þjálfun barna og unglinga
    ÍÞRF2ÞJ05
    3
    íþróttafræði
    þjálfun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er bóklegur og verklegur. Nemendur skulu þjálfast í grundvallar aðferðum kennslu barna og unglinga og undirbúa nemendur undir þjálfara hlutverkið. Nemendur læra um hlutverk þjálfara og leiðbeinanda í íþróttastarfi, þar sem sértök áhersla er lögð á aldurinn þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Meðal efnis er þolþjálfun, styrktarþjálfun, tækniþjálfun og liðleikaþjálfun. Nemendur læri um vöxt barna, hreyfiþroska, næringu, félagsþroska og sálrænan þroska. Farið verður í stefnu íþróttahreyfingarinnar í þjálfun barna og unglinga auk annarra stefna er snúa að þjálfara hlutverkinu. Sérstök áhersla skal lögð á mikilvægi leikrænnar kennslu í þjálfun barna og unglinga, auk þess sem nemendum skal leiðbeint með framsögn og aðferðir til að ná til barna í þjálfun. Fjallað er um þjálfarann sem fyrirmynd og í því samhengi áhrif áfengis, tóbaks og annarra vímuefna á líkamann og afkastagetu þjálfara og iðkenda. Farið skal í siðfræði þjálfarans. Áfanginn fæst metinn inn í þjálfarakerfi ÍSÍ sem almennur hluti 1a, 1b, og 1c.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki þjálfarans
    • skipulagi og áætlanagerð í þjálfun
    • muninum á þjálfun barna og unglinga
    • hreyfiþroska, sálrænum þroska og félaglegum þroska barna
    • mikilvægi holls mataræðis í þjálfun
    • mikilvægi þess að þjálfarinn sé fyrirmynd
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja þjálfun til lengri og skemmri tíma
    • standa fyrir framan hóp og útskýra æfingar
    • ná athygli nemenda í kennslu
    • notfæra sér upplýsingatækni við þjálfun og undirbúning þjálfunar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • miðla þekkingu sinni til iðkenda við grunnþjálfun barna og unglinga
    • skipuleggja grunnþjálfun miðað við mismunandi aðstæður og mismunandi getustig iðkenda
    • breyta æfingum svo þær hæfi mismunandi aldursstigum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.