Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329140580

    Bókmenntir, málnotkun og ritun
    ÍSLE2RB06
    18
    íslenska
    bókmenntir, ritun
    Samþykkt af skóla
    2
    6
    Í þessum grunnáfanga eru grundvallarhugtök,ritunar,bókmennta og málnotkunar tekin til skoðunar. Nemendur eru m.a. þjálfaðir í gerð heimildaritgerða og læra ýmislegt um frágang ritaðs máls. Þeir lesa fjölbreytta texta svo sem bókmenntir, dagblaða-, tímaritatexta, auk texta á netinu. Farið er í grundvallaratriði í setningafræði. Lesin er ein kjörbók og horft á kvikmynd.
    Grunnskólapróf
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum í ritgerðasmíð
    • almennum stafsetningarreglum
    • hugtökum í bókmenntafræði og bragfræði í umfjöllun um bókmenntir
    • fjölbreyttum tegundum texta
    • sérkennum ritmáls og talmáls
    • grundvallarvinnubrögðum við skrif heimildaritgerða
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • kynna sér tiltekið efni og taka afstöðu til þess
    • beita stafsetningarreglum í rituðu máli
    • nota bókmenntahugtök þar sem við á
    • skrifa ritgerð þar sem hann beitir gagnýnni hugsun og kemur skoðun sinni á framfæri á skýran og greinargóðan hátt
    • nota viðeigandi hjálpargögn við frágang verkefna
    • afla upplýsinga eftir fjölbreyttum leiðum
    • lesa sér til gangs og gamans mismunandi tegundir texta og fjalla um inntak þeirra
    • tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • taka gagnrýna afstöðu til mismunandi textategunda og færni í að færa rök fyrir máli sínu ...sem er metið með... margskonar textavinnu
    • vinna að skapandi verkefnum í tengslum við námsefnið ...sem er metið með... ritunarverkefnum
    • beita skýru og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti ...sem er metið með... munnlegum og skriflegum verkefnum
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra á gagnrýninn hátt ...sem er metið með... verkefnavinnu
    • túlka texta þótt merkingin sé ekki alltaf augljós ...sem er metið með... lestri ólíkra texta
    • tjá afstöðu sína og efasemdir um viðfangsefnið og komast að niðurstöðu ...sem er metið með... munnlegum og skriflegum verkefnum
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemenda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matsins eru eftirfarandi þættir metnir. Fjölbreytt verkefni úr ólíkum efnisþáttum. Kannanir. Kjörbókarverkefni/umsögn um kvikmynd. Heimildaritgerð.