Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353582228

    Vöðvar og bein
    LÍFF3VB05
    12
    líffræði
    bein, hreyfingarfræði, líffærafræði, vöðvar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum verður fjallað um starfsemi mannslíkamans með áherslu á bein og vöðva. Sérstök áhersla verður lögð á þau líffæri og líffærakerfi sem tengjast hreyfingum mannslíkamans. Fjallað verður um bein, bönd og liðamót, liðfleti og liðpoka. Einnig verður fjallað um hreyfingu í liðamótum og stefnu hreyfinga. Fjallað verður um einstaka vöðva, upptök þeirra, festu og starf. Fjallað er um hugtök og grundvallaratriði hreyfifræðinnar og komið inn á tækni íþróttagreina. Enn fremur er fjallað um rétta lyftitækni, starfsstellingar og hreyfingar við vinnu.
    ÍÞRF2ÞJ05 eða LÍFF2EL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki beinagrindar og hreyfingum helstu liðamóta
    • helstu vöðvum og vöðvahópum líkamans
    • grundvallaratriðum hreyfifræðinnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • staðsetja helstu bein, bönd og liðamót
    • beita helstu lögmálum hreyfifræðinnar í leik og starfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér rétta lyftitækni við vinnu sína
    • beita réttum starfsstellingum við athafnir daglegs lífs
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.