Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353583302

    Íþróttasaga
    SAGA2ÍÞ05
    10
    saga
    félagasamtök, íþróttasaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er farið yfir helstu atriði í íslenskri íþróttasögu. Komið er inn á helstu þætti í erlendri íþróttasögu ss. Ólympíuleika og ýmsar greinar íþrótta.Einnig er komið inn á Íþróttir Grikkja, íþróttir Etrúra og íþróttir Rómverja. Fjallað er um gidli og hlutverk íþrótta í nútíma samfélagi. Komið er inn á félagslegar rannsóknir á sviði íþrótta á Íslandi, áhrif fjölmiðla á þróun íþrótta, kynjamun og íþróttaiðkun, ásamt tengingu fjármagns og auglýsinga við íþróttir. Fjallað er um stefnur í íþróttum, ss. Afreksmannastefnu íþróttahreyfingarinnar og afreksmannasjóð. Vikið er að skipulagningu íþróttahreyfingarinnar og uppbyggingu hérlendis og hvernig við tengjumst heimssamtökunum. Efnisatriði: Íþróttir á Krít til forna, íþróttir Grikja til forna, íþróttir Etrúra, íþróttir Rómverja, Íþróttir á miðöldum, Húmanisminn og íþróttir, Upplýsingin og íþróttir, Upphaf nútíma íþróttakennslu, Ólympíuleikar nútímans, Ólympíuhreyfinging og hugsjónin. Íþróttir á Íslandi frá landnámi til nútímans. Farið í íþróttahreyfinguna, árangur íslendinga á Ólympíuleikum. Þá er skoðaðar íþróttir út frá áhrifum á samfélagið, íþróttir mismunandi hópa, íþróttir sem heilsuefling, gildi íþrótta, forvarnir, áhrifamáttur og tengsl fjölmiðla og fjármagns við íþróttir.
    ÍÞRF2ÞJ05 eða SAGA1MF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu íþrótta í heiminum til forna, allt frá grikkjum
    • sögu íþrótta á Íslandi fyrr og nú
    • glímu, sem þjóðaríþrótt Íslendinga
    • helstu atriðum í sögu Ólympíuleika
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja gildi íþrótta sem forvarnarstarfs
    • skilja samfélagslegt gildi íþrótta fyrr og nú
    • skilja gildi íþrótta sem söluvöru
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • þekkja uppbyggingu og skipulag íþróttahreyfingarinnar á Íslandi
    • læra um áhrifamátt og tengsl fjölmiðla og fjármagns við íþróttir
    • taka þátt í umræðum um íþróttir í samfélaginu í víðum skilningi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.