Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353597248

    Orka og næring
    NÆRI2ON05
    4
    næringarfræði
    næringarefni, orka
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á grundvallar-atriðum næringarfræðinnar og samspili næringar, heilsu og íþróttaiðkunar. Fjallað er um næringarþörf mannsins, næringargildi og samsetningu helstu matvara. Farið verður í uppbyggingu og samsetningu próteins, fitu og kolvetna. Fjallað um vatn, vítamín og steinefni og gerð grein fyrir gildi þessara efna í fæðunni. Matseðlar metnir og samdir og reiknað næringargildi út frá töflum. Fjallað er um áhrif matreiðsluaðferða á næringargildi. Efnisatriði: Næringarfræði, næringartafla, orkuneysla, orkuþörf, orkuefni, prótein, fita, kolvetni, vatn, steinefni, snefilefni, vítamín, næringargildi, fæðutegundir, könnun á neysluvenjum, næringarþörf mismunandi aldurshópa, máltíðir, dagsþörf, fæðudagbók.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallaratriðum í næringarfræði
    • samspili næringar og heilsu
    • helstu orkuefnum fæðunnar
    • hlutverki fæðubótarefna sem hluta af fæðuinntöku
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta eigin orkubrennslu út frá viðurkenndum töflum
    • meta eigin orkuþörf yfir ákveðinn tíma
    • setja saman vel samsetta máltíð útfrá næringarmarkmiðum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • meta eigin neysluvenjur
    • meta samspil orkuþarfar og orkuneyslu í líkamanum
    • meta þörf fyrir neyslu fæðubótarefna
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.