Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1353678774

    Styrkur og liðleiki
    ÍÞRÓ1SL01
    11
    íþróttir
    liðleiki, líkamsbeiting, styrkur, íþróttameiðsli
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er lögð áhersla á verklega og fræðilega þætti kraft- og liðleikaþjálfunar. Farið er yfir mikilvægi líkamsstyrks (krafts) fyrir stoðkerfi líkamans, líkamsbeitingu og líkamsreisn. Nemendur læra að stunda kraftþjálfun sem nær til helstu vöðvahópa líkamans. Þá er komið inn á mikilvægi réttrar líkamsbeitingar við kraftþjálfun og fjölbreytta möguleika á þjálfun krafts, s.s. með eigin líkamsþunga eða í tækjasal. Farið er yfir mikilvægi liðleika og liðleikaþjálfunar fyrir líkamann og áhrif liðleikaæfinga á vöðva og liðamót. Nemendur fá að taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa liðleika. Einnig er nemendum gefið tækifæri til að taka þátt í slökunaræfingum og umræðu um mikilvægi slökunar í nútímasamfélagi.Einnig komið inná algengustu íþróttameiðsli, skyndihjálp og líkamsbeitingu í daglegu lífi.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum þjálfunarleiðum íþrótta og heilsuræktar
    • helstu lögmálum kraftþjálfunar og aðferðum sem beitt er til að auka kraft
    • helstu lögmálum liðleikaþjálfunar og byggingu líkamans
    • algengustu meiðslum sem verða við íþróttaiðkun
    • mikilvægi réttrar líkamsbeitingar í leik og starfi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • meta eigin líkamsástand
    • útbúa æfingaáætlun sem miðast við að auka kraft og liðleika
    • hlusta á líkama sinn varðandi álag í íþróttaiðkun og minnka þannig hættu á meiðslum
    • nota góða vinnutækni og vinnustellingar
    • efla á markvissan og einstaklingsbundinn hátt líkamshreysti og þrek
    • stunda markvissa og fjölbreytta styrktar-, liðleika- og þolþjálfun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leysa af hendi verkefni, æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamshreysti
    • framkvæma eigin þjálfáætlun sem miðar að því að auka kraft og liðleika
    • beita fyrstu aðstoð í meðhöndlun meiðsla í íþróttum
    • gæta að bakheilsu sinni og koma þannig hjá álagssjúkdómum vegna einhæfrar vinnustellinga
    • nýta sér upplýsingatækni við alhliða líkams- og heilsurækt og mat á eigin heilsu
    Eitt verkefni, eitt próf og auk þess þarf að skila vinnubók. Verkefni og upplýsingar er hægt að nálgast á Moodle.