Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1329219987

    Almenn jarðfræði
    JARÐ1AJ06
    5
    jarðfræði
    almenn jarðfræði
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    Í áfanganum er lögð áhersla á jarðfræði Íslands, tengsl uppruna landsins við landrekskenningar og landmótun af völdum innrænna og útrænna afla. Farið er í undirstöðuatriði steinda- og bergfræði, myndun mismunandi kvikugerða og eldvirkni.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • notagildi jarðfræðiþekkingar
    • myndun mismunandi landsvæða af völdum innrænna afla, s.s. út frá landreki, eldvirkni, jarðskjálftum og jarðhita
    • landmótun af völdum útrænna afla, s.s. frostverkana, vatnsfalla, sjávar, jökla og vinds
    • hugmyndium um eldvirkni á Íslandi og myndunarsögu landsins
    • algengustu steindum og bergtegundum hérlendis
    • helstu gerðum eldstöðva og geti skýrt mismunandi eldvirkni þeirra
    • mismunandi gerðum vatnsfalla og einkennum þeirra
    • ólíkum gerðum jökla, myndun þeirra og skriði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þekkja steindir og jarðfræðifyrirbrigði í náttúrunni
    • leysa verkefni sem tengjast námsefninu almennt
    • beita algengustu hugtökum og heitum í jarðfræði í umfjöllun sinni um myndun og gerð náttúrufyrirbæra
    • nýta upplýsingatækni við öflun upplýsinga og heimilda við verkefnavinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið
    • læra að njóta náttúrunnar og hins ólífræna í náttúrunni á ferðum sínum í framtíðinni
    • gera sér grein fyrir gildi sérstakra náttúrufyrirbrigða
    • gera sér grein fyrir mikilvægi þekkingar á jarðfræði við ákvörðunartöku mannsins þegar kemur að nýtingu og framkvæmdum
    • taka ábyrga afstöðu til hegðun sinnar m.t.t. náttúrufyrirbrigða og sjálfbærrar nýtingar auðlinda
    • takast á við frekara nám í náttúru- og jarðfræði
    Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda er metin jafnóðum allan námstímann. Til grundvallar matinu eru eftirfarandi þættir: Kaflapróf; meðaltal skriflegra prófa á önninni (50%). Skilyrði til að ná áfanganum er að meðaltal kaflaprófa nái 4,5. Lokaverkefni úr köflum og heimildaverkefni til kynningar (40%). Skilyrði til að ná áfanganum er að meðaltal einkunna úr verkefnum nái 4,5. Mat kennara á vinnu nemenda, vinnubrögðum og framförum (10%).