Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1351689396

    Grunnáfangi í frumulíffræði og erfðafræði.
    LÍFF1FR06
    6
    líffræði
    frumulíffræði og erfðafræði
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    Í áfanganum er lögð áhersla á grundvallarþætti í frumulíffræði og erfðafræði. Farið verður í byggingu og starfsemi mismunandi frumuhluta. Fjallað verður um frumuskiptingar og erfðaefnið. Ef tími er til verður einnig fjallað um mismunandi vefjagerðir.
    Engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • byggingu og starfsemi fruma; heilkjörnunga og dreifkjörnunga
    • gerð og hlutverki frumulíffæra, frumuhluta
    • flutningi efna um frumuhimnur
    • kenningum um tilurð og þróun heilkjörnunga
    • mismunandi frumuskiptingum
    • sáð- og eggfrumumyndun hjá manninum
    • lögmálum Mendels og algengum erfðamynstrum
    • byggingu DNA og RNA
    • genatjáningu; afritun, umritun og þýðing erfðaefnisins
    • mismunandi genastökkbreytingum
    • grunnatriðum í erfðatækni
    • gerð og hlutverki dýra- og plöntuvefja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota ljóssmásjá
    • skoða frumur og vefi með ljóssmásjá
    • leysa erfðafræðidæmi
    • lesa úr erfðamynstrum
    • lesa úr erfðatáknmálinu
    • nýta upplýsingatækni við öflun upplýsinga og heimilda við verkefnavinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning sinn á því smásæja í lifandi efni sem metið er með verkefnum og verklegum æfingum
    • tengja undirstöðuþekkingu í frumu- og erfðafræði við daglegt líf sem metið er með munnlegum og skriflegum verkefnum
    • bera virðingu fyrir og taka ábyrga afstöðu til hegðun sinnar m.t.t. lifandi náttúru og eigin líkama
    • vera meðvitaðri um ástæður erfðafræðilegrar fötlunar og geti tekið ábyrga afstöðu til málefna þar að lútandi
    • afla sér upplýsinga og frekari þekkingar varðandi viðfangsefnið ...sem er metið með... ýmsum verkefnum
    • þjálfa sjálfstæð vinnubrögð við úrlausn verkefna ...sem er metið með... leiðsagnar- og sjálfsmati
    • takast á við frekara nám í efna- og náttúrufræðum
    Kaflapróf; meðaltal skriflegra prófa á önninni (50%). Skilyrði til að ná áfanganum er að meðaltal kaflaprófa nái 4,5. Ýmis einstaklingsverkefni,skýrslur úr verklegum æfingum, niðurstöður úr hópavinnuverkefnum (40%). Skilyrði til að ná áfanganum er að meðaltal allra verkefna nái 4,5. Mat kennara á vinnu nemenda, vinnubrögðum, ástundun og framförum (10%).