Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1355498597

    Aðferðir og tjáning
    LJÓS2AT05
    4
    ljósmyndun
    aðferðir, tjáning
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum læra nemendur að beita aðferðum ljósmyndunar til að tjá hugmyndir sínar og tilfinningu fyrir umheiminum. Þeir taka ljósmyndir, framkalla filmuna, stækka myndir og ganga frá þeim til sýningar. Áhersla er lögð á meðvitund nemenda um inntak og uppbyggingu bæði innan einstakra mynda og í samhengi innan myndraða. Hér eru nemendur hvattir til að skoða þá sýn sem myndir þeirra birta af umheiminum. Tveir þættir vega því þyngst í vinnunni: annars vegar ferlið sköpun, túlkun og tjáning þar sem nemendur vinna að eigin verkefnum innan ákveðins ramma sem kennari ákveður, hér taka nemendur myndir, skoða og vinna til sýningar; og hins vegar ferlið skynjun, greining og mat þar sem nemendur greina eigin verk, verk samnemenda og valin verk úr ljósmyndasögunni með tilliti til inntaks og mynduppbyggingar. Áætlað er að áfanganum ljúki með ljósmyndasýningu í lokin á veggjum skólans þar sem sýndar verða bæði svart/hvítar myndir framkallaðar í myrkrakompu og digital litmyndir prentaðar á ljósmyndapappír.
    engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hann getur beitt ljósmyndavél við ólíkar aðstæður til að ná fram fjölbreyttu myndefni og kunni skil á tengslum ljósops, tökuhraða og filmuhraða
    • möguleikum á ljósmyndavinnslu í tölvu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • fullvinna ljósmynd til sýningar
    • stækka mynd í stækkara
    • framkalla mismunandi filmugerðir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir áhrifum mismunandi mynduppbyggingar á merkingu ljósmynda
    • skilja hvernig ólík tákn, sem birtast í myndum og samhengi þeirra geta breytt merkingu mynda
    • fjalla um og meta eigin verk og annarra á upplýstan og greinargóðan hátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.