Áfanginn er ætlaður þeim sem ekki hafa náð viðunandi árangri í stærðfræði til að teljast búa yfir þeirri þekkingu í faginu sem krafist er í námi á framhaldsskólastigi og hafa lokið STÆ 192. Byggt er á þekkingu nemenda á undirstöðu reikniaðgerða: samlagningu, frádrætti, margföldun og deilingu ásamt forgangsröðun reikniaðgerða. Þessari þekkingu beita nemendur við lausn flóknari dæma.
Stærðfræði fornámsáfangi fyrri hluti
stær1FO04_10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
velda og rótareikningi
hlutföllum og prósentum
hnitakerfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna með velda- og rótareiking
vinna með hlutföll og prósentur
þekkja hvaða reikniaðferðir á að nota í daglegu lífi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
beita velda og rótareikning
reikna hlutföll og prósentur
skiptast á skoðunum við aðra um aðferðir til að leysa fjölbreytt dæmi
beita þessum reikiaðferðum við daglegt líf
Átta heimaverkefni sem gilda samtals 50% - nemendur þurfa að skila öllum heimaverkefnum og ná 4.5 í meðaleinkunn til að standast áfangann.
Fimm kaflapróf unnin í kennslustundum sem gilda 50% - nemendur þurfa að taka öll próf og ná 4.5 í meðaleinkunn til að standast áfangann.