Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1369921954.37

    Akademískur orðaforði og rauntextar
    ENSK3AC05
    13
    enska
    Akademískur orðaforði og rauntextar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Eitt helsta markmið áfangans er krefjandi akademískur orðaforði í takt við það sem nemendur geta átt von á á háskólastigi. Áhersla er lögð á að nemendur vinni með fjölbreyttari og flóknari texta en áður, bæði texta í kennslubók og rauntexta. Þeir byggja ofan á almennan orðaforða vísinda og fræða sem þeir hafa tileinkað sér á fyrsta námsári. Nemendur kynnast bókmenntum rituðum á ensku. Þeir velja sér þekkt bókmenntaverk frá Bandaríkjunum eða Bretlandi og fjalla um það í málstofu. Nemendur þurfa að tjá hugsun sína skýrt og rökstyðja skoðanir sínar.
    ENSK2UK05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • orðaforða í ræðu og riti sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
    • mismunandi gerðum fræðitexta af ólíkum sviðum
    • bókmenntum rituðum á ensku, einkum bandarískum og breskum
    • sögu, þjóðfélagsfræði og menningu á helstu málsvæðum enskunnar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, bæði hvað varðar orðaforða og uppbyggingu
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í texta
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni fræðilegs og menningarlegs eðlis
    • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu af lipurð og kunnáttu og geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
    • lýsa skýrt og greinilega flóknum hlutum eða ferlum á sviði sem þeir hafa kynnt sér
    • skrifa texta sem uppfyllir akademískar kröfur um orðaforða og uppbyggingu