Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1370274968.23

    Almenn tölvunotkun, skjalavistun, algengur hugbúnaður
    UPPT1UT05
    1
    upplýsingatækni
    tölvunotkun, upplýsingamennt
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    XT
    Í áfanganum kynnast nemendur almennri notkun einkatölva, Internetsins, skjalavistunar, töflureiknis og ýmiss hugbúnaðar til ritvinnslu, glærugerðar og tölvupóstssamskipta.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • virkni þess hugbúnaðar sem kennt er á
    • möguleikum til að nýta hugbúnaðinn
    • skjalavistunaraðferðum
    • almennri notkun einkatölva
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna í þeim hugbúnaði sem kennt er á
    • fylgja fyrirmælum við vinnslu verkefna í viðkomandi hugbúnaði
    • setja upp og ljúka verkefnum samkvæmt fyrirmælum
    • vista skjöl sem hann vinnur með á viðeigandi stað
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nota þann hugbúnað sem kennt er á sjálfstæðan hátt
    • nýta hugbúnaðinn við aðrar aðstæður, í skóla og starfi
    Námsmat í áföngum Tæknimenntaskólans er í höndum kennara viðkomandi áfanga en fyrirkomulag námsmatsins þarf að rúmast innan þess ramma sem kemur fram í verklagsreglu VKL-306 í Rekstrarhandbók skólans.