Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1371122900.48

    Litafræði og tölvuvinnsla
    LITA1LT05
    1
    litafræði
    litafræði og tölvuvinnsla
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Nemendur læra grunnþætti litafræðinnar. Nemendur læra litablöndun og táknfræði lita. Nemendur læra um eðli og merkingu myndbyggingar og gera mismunandi æfingar til að þjálfa samspil lita og myndbyggingar, m.a. með munsturgerð . Kennt er á Photoshop með æfingum, sem m.a. þjálfa nemendur í að vinna með lagskiptar myndir til að þjálfa liti, form og myndbyggingu. Nemendur þjálfast í að þróa eigin hugmyndir í tölvu með hjálp Photoshop út frá eigin áhugasviði. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í að koma frá sér hugmyndum á tölvutæku formi, skoða verk sín og annarra og þjálfist í að gefa og taka við uppbyggilegri gagnrýni. Nemendur kynnast verkum íslenskra samtímalistamanna og hönnuða.
    Enginn.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig litakerfi eru notuð í myndlist og hönnun
    • litablöndun og táknfræði lita
    • hvernig mismunandi litaspil og mismunandi myndbygging breytir virkni og áhrifum myndar
    • hvernig búa á til munstur
    • hvernig mála á með þekjulitum og akrýllitum
    • hvernig vinna má með lagskiptar myndir í Photoshop
    • hvernig unnin er hugmyndavinna í Photoshop
    • hvernig íslenskir myndlistarmenn og hönnuðir vinna
    • hvernig vinna má hugmynda- og skissubók í skjámiðli
    • mikilvægi þess að geta rætt um eigin verk og annarra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • blanda liti og vinna sjálfstætt myndverk
    • beita litum og skilja mismunandi tákn lita
    • byggja upp mynd með mismunandi myndbyggingu
    • búa til munstur
    • koma hugmyndum sínum á tölvutækt form og vinna með þær í Photoshop
    • vinna persónulega skissu- og hugmyndabók í skjámiðli
    • ræða um eigin verk og annarra
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • blanda liti af öryggi og beita þeim á markvissan hátt ...sem er metið með... verkefnum
    • setja saman liti á markvissan og táknrænan hátt í myndverk og fatnað ...sem er metið með... verkefnum
    • vinna með sínar eigin hugmyndir í tölvu og þróa þannig upp hugmyndabanka ...sem er metið með... verkefnum
    • koma hugmyndum sínum frá sér með fjölbreyttum aðferðum ...sem er metið með... verkefnum
    Símat þar sem öll verkefni nemenda verða metin með tilliti til tækni, fagurfræði, vinnusemi, vinnubragða og hvernig nemandi tekur tilsögn kennara.