Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1371130584.08

    Textíll og hönnun
    TEXT1HÖ03
    1
    textílhönnun
    textíll og hönnun
    Samþykkt af skóla
    1
    3
    Nemendur læra að virkja sköpunarkraftinn í sjálfum sér og temja sér aðferðir til að skynja umhverfi sitt og nýta það til listsköpunar. Nemendur eru þjálfaðir í að setja fram hugmyndir sínar á skipulagðan hátt, vinna með sambandið milli hugmynda, hráefnis, tækni, aðferða og listrænnar sköpunar, greiningar og túlkunar. Þetta er blandaður áfangi þar sem nemendur fá að spreyta sig á ólíkri tækni og aðferðum textílhönnunar. Verkefni verða nokkuð frjáls í höndum nemenda, hvort sem að áhugi liggi í fatahönnun, nytjahönnun eða skúlptúr. Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og nemendum ber að skila ferilmöppu í lok áfangans. Nauðsynlegt er fyrir nemendur að hafa aðgang að myndavél. Hugmyndabók og myndavél mun fylgja nemendum í gegnum allt námskeiðið.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Notkun hugmyndabókar og skráningu hugmynda.
    • Munsturgerð og meðferð mynstra.
    • Skissuvinnu og teikningu.
    • Formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar.
    • Litum og formum úr efnivið úr nánasta umhverfi.
    • Grunnþáttum textílvinnu í tilraunum með efni og þræði.
    • Framsetningu og frágang verkefna í ferilmöppu.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skrá hugmyndir, hugleiðingar og minnispunkta í hugmyndabók.
    • Skapa mynstur og raða þeim saman á mismunandi hátt með hjálp tölvu, klippimynda eða teikninga.
    • Skilja ferlið frá hugmynd að fullunnu verki.
    • Hugleiða útlit og notagildi út frá fagur- og formfræðilegum forsendum.
    • Þekkja liti, gildi þeirra og notkun í umhverfi okkar.
    • Skilja samband á milli hugmyndar, hráefnis, tækni, aðferða og niðurstöðu.
    • Setja fram hugmynd sína á munnlegan, skriflegan og myndrænan hátt.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og útfært textílhlut með tilliti til lita- og formfræði.
    • Nota efni og form í eigin listsköpun.
    • Geta opnað augun fyrir hinum hversdagslegu hlutum í umhverfinu og nýtt þá í listsköpun.
    • Vinna með efni úr nánasta umhverfi.
    • Skynja liti og samsetningu þeirra í umhverfinu og í listsköpun. Nota myndavél til að afla sér efnivið til frekari listsköpunar.
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.