Áfanginn er samstarfsverkefni Kvennaskólans í Reykjavík og Calmare Internationella Skolan í Kalmar í Svíþjóð. Um er að ræða nemendaskipti sem styrkt eru af Nordplus Junior. Í áfanganum bera nemendur saman aðstæður þessara tveggja landa hvað varðar orku- og umhverfismál, heilsu og tækni. Unnin eru hópverkefni þar sem þemu og umfjöllunarefni eru tengd áðurgreindum þáttum. Auk þess kynnast nemendur hluta af menningu og náttúru landanna tveggja og skólamenningu sem einkennir hvort land fyrir sig.
Nemendur byrja á að undirbúa verkefnavinnu og ferð til Kalmar í Svíþjóð. Þar er dvalið á heimilum sænskra nemenda í eina viku á haustönn. Farið er í heimsóknir í fyrirtæki og stofnanir í orku- og iðnaðargeiranum og í vettvangsferðir þar sem skoðuð eru náttúrufyrirbæri og merkir staðir. Auk þessa vinna nemendur verkefni í blönduðum hópum í skólunum.
Sænskir nemendur koma til Íslands á vorönn og undirbúa nemendur komuna, taka þátt í skoðunarferðum og námsheimsóknum í fyrirtæki auk þess að vinna verkefni tengd orku, umhverfi, tækni og heilsu. Sænsku nemendurnir dvelja á heimilum íslensku nemendanna í viku. Verkefnaskil eru í lok heimsóknar sænsku nemendanna þar sem nemendur gera munnlega grein fyrir niðurstöðum hópavinnu.
Áfangar í raungreinum og stærðfræði á 1. ári náttúruvísindabrautar s.s. EFNA2AM05, STÆR2GN05, JARÐ1AJ05, LÍFF1GR05 eða sambærilegir áfangar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
orkuvinnslu með mismunandi hætti s.s. gufuafli, vatnsafli og kjarnorku
umhverfisáhrifum orkuvinnslu með kjarnorku, vatnsafli og gufuafli
frágangi kjarnorkuúrgangs
vinnslu kalksteins til sementsgerðar og ferli sementsframleiðslu
nýtingu úrgangs við sementsframleiðslu
fuglarannsóknum á Öland
ýmsum framleiðslu- og iðnaðarfyrirtækjum hér heima og í nágrenni Kalmar
hluta af sameiginlegri sögu Norðurlanda er varðar Kalmarsambandið
muninum á íslenska og sænsku skólakerfinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
kynna sér orku- og umhverfismál í öðru landi og vinna úr þeim upplýsingum
kynna sér orku- og umhverfismál á Íslandi og vinna úr þeim upplýsingum
taka þátt í vinnustaðaheimsóknum og vettvangsferðum
vinna með fólki af öðru þjóðerni með ensku sem samskiptamál
eiga í hversdagslegum samskiptum við fólk af öðru þjóðerni
afla sér á margvíslegan hátt upplýsinga um annað land, þjóð þess og aðstæður
kynna sér menningu annars norræns lands
kynna eigið land og þjóð fyrir fólki af öðru þjóðerni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja mat á umhverfisáhrif orku- og iðnaðarframleiðslu eða aðra þætti sem eru til skoðunar hverju sinni
geta borið saman ólík lönd og þjóðir, menningu þeirra og ólíkar aðstæður vegna náttúrufars
koma þekkingu sinni og skilningi á framfæri á margvíslegan hátt
nýta kunnáttu sína í ensku í umræðum, vinnu með öðrum og kynningum
ferðast til annarra landa og njóta þeirrar upplifunar, bæði sem einstaklingur og hluti af hóp.