Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1401471329.02

    Skartgripahönnun
    HÖNN2HS03
    4
    hönnun
    Hönnun skartgripa og nytjahluta
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Þessi áfangi er frekar óhefðbundinn þar sem nemendur fá að spreyta sig á ólíkri tækni, aðferðum og efnum innan skartgripahönnunar. Verkefnin verða nokkuð frjáls í höndum nemenda þar sem þeir þurfa að hanna sína eigin skartgripi með tilliti til efnis, litavals og útlits. Í boði er að hanna hálsfestar, armbönd, eyrnalokka, nælur og annað skart. Nemendur fá að vinna með hugmynd að fullunnu verki og sjá hana þróast í veruleika sem er mjög gefandi og þroskandi. Tilfinning fyrir listum býr í hverjum einstakling og því fá nemendur tækifæri til að virkja sköpunarkraftinn í sjálfum sér og læra að skynja umhverfi sitt betur og nýta það til listsköpunar, eins og með endurnýtanleg efni. Tímarnir eru frjálslegir og bjóða upp á afslappað andrúmsloft. Lögð er áhersla á skapandi, vönduð og sjálfstæð vinnubrögð.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Munsturgerð og meðferð mynstra í hönnun
    • Formum, línum og hreyfingu innan listsköpunar
    • Ferli frá hugmynd að fullunnu verki
    • Mikilvægi þess að sýna öguð og vönduð vinnubrögð í handverki
    • Gildi lita og notkun þeirra í umhverfi okkar
    • Umhverfismennt og endurnýtingu efna
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Nota hugmyndabók og að skrá hugmyndir
    • Beita sjálfstæðum vinnubrögðum og að vera vandvirkur í verkefnavinnu
    • Skipuleggja eigið vinnuferli og gera uppdrætti/skissur að verkefni
    • Setja fram hugmyndir sínar á munnlegan hátt og ræða þær opinskátt
    • Vinna með endurnýtanleg efni í listsköpun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Nýta sér hæfni sína í listræna vinnu og sköpun
    • Sýna frumkvæði í verkefnavinnu og verkefnavali
    • Vinna með hugmyndir sínar á persónulegan hátt og sýna sjálfstæði
    • Nýta sér hversdagslega hluti í umhverfinu og nota þá í listsköpun
    • Beita gagnrýnni og skapandi hugsun og sýna áræðni og frumleika við lausnir vinnu sinnar
    • Vinna með efni úr nánasta umhverfi
    • Þroska færni sína og skilning á list og/ eða hönnun
    • Vera sjálfbær og tileinka sér endurnýtanleg efni í listsköpun
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.