förðun, hönnun búninga, hönnun leikmyndar, lýsing og hljóðmynd
Samþykkt af skóla
2
5
Áfanginn er kenndur með LEIK2LM10. Nemendur í áfanganum vinna útlit sýningar LME, að hluta til eða í heild, undir leiðsögn kennara og í samvinnu við leikstjóra. Áfanginn getur tekið til hönnunar leikmyndar, búninga, förðunar, lýsingar og/eða hljóðmyndar sýningarinnar.
SVIÐ1GT05, SJÓN1TE05 og HUGM2HS05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallaratriðum í útlitslegum þáttum sviðslista
skipulagningu verkefna í kringum útlitsvinnu sviðslistaverka
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita völdum verklegum þáttum í útlitshönnun sviðslista
beita hugmyndavinnu í útlitshönnum sviðslistaverka
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
taka þátt í útlitsvinnu fyrir sviðslistaverk
vinna sjálfstætt að skipulagningu valinna þátta útlitshönnunar sviðslistaverka
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.