Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1408446082.21

    Töflureiknir, hugarkort og önnur forrit
    TÖLN1GR05
    5
    Tölvunotkun
    Grunnáfangi í tölvunotkun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum grunnáfanga í tölvunotkun er farið yfir notkun á töflureiknum, ritvinnslu, powerpoint, prezi, samvinnu á netinu og ýmislegt annað tengt almennri tölvunotkun. Áhersla verður á að efni áfangans komi nemendum að notum í námi sínu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Nýtingarmögleikum ýmissa forrita
    • Vefsíðum og smáforritum sem nýtast í námi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Setja upp gögn á skýran hátt í töflureikni
    • Reikna með gögn í töflureikni
    • Búa til línurit í töflureikni
    • Vélrita samkvæmt fingrasetningu
    • Læra sjálfur á ný forrit
    • Vinna saman í hóp með aðstoð netsins
    • Setja upp kynningar með mismunandi forritum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
    • Bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • Vinna í hópi með aðstoð tölva og netsins
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.