Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1409065306.35

    Hvað er sálfræði?
    SÁLF2IS05
    13
    sálfræði
    inngangur að sálfræði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Þetta er grunnáfangi í sálfræði og er ætlað að kynna nemendum sálfræði út frá fræðilegu og hagnýtu sjónarhorni, sögu hennar og þróun. Helstu sálfræðistefnur og grunnhugtök eru kynnt. Þá er fjallað um starfssvið sálfræðinga og sálfræði í daglegu lífi. Nemendur kynnast helstu rannsóknaraðferðum sálfræðinnar og lögð mikil áhersla á rannsóknarvinnu nemenda. Þar takast nemendur á við viðfangsefni sem eru raunhæf og áhugaverð. Nemendur fá mikla þjálfun í framsetningu á rannsóknarniðurstöðum. Fjallað er sérstaklega um námssálfræði bæði á fræðilegan og hagnýtan hátt og nemendur læra um mismunandi tegundir náms og samspil hugsunar, hegðunar og tilfinninga.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróun fræðigreinarinnar sálfræði
    • grundvallarhugmyndum sem móta kenningar í sálfræði
    • helstu frumkvöðlum í greininni
    • víðfeðmi sálfræðinnar og helstu undirgreinum hennar
    • leiðum sálfræðinnar til að útskýra hugsun, hegðun og tilfinningar manneskjunnar
    • mótunaröflum einstaklinga og hópa
    • muninum á fræðilegri sálfræði og alþýðusálfræði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa í og skilja umfjöllun um helstu hugmyndir sem mótað hafa sálfræðina
    • beita algengustu hugtökum sálfræðinnar á skýran og skilmerkilegan máta
    • skoða sína eigin hegðun og annarra út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
    • skoða eigin hugsun og tilfinningar út frá grundvallarhugmyndum sálfræðinnar
    • tjá kunnáttu sína á munnlegan og skriflegan hátt
    • greina einfaldar leiðir til að breyta hegðun og/eða hugsun sinni.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera sér grein fyrir mótunaráhrifum umhverfis á sjálfan sig og aðra
    • gera sér grein fyrir samspili hegðunar, hugsunar og tilfinninga
    • geta með einföldum hætti yfirfært sálfræðilega þekkingu á eigin sjálfsmynd
    • tjá sig skipulega og gagnrýnið um einstaka efnisþætti
    • geta framkvæmt einfalda rannsókn og áttað sig á helstu niðurstöðum
    Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.