Í þessum áfanga er farið yfir grunnþætti í tengslum við hringhreyfingu, þyngdarlögmálið, sveifluhreyfingar, þrýsting, gaslögmál og varmafræði. Áhersla verður á skilning nemandans á efninu og getað tengt það við raunveruleg vandamál.
EÐLI2KA05 og samhliða STÆR3LE05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hreyfingu og hröðun hluta í fleti
hringhreyfingu hluta
þyngdarlögmálinu og áhrif þess á hreyfingu reikistjarna
einfaldar sveiflu- og bylgjuhreyfingar
þrýstingi í vökva og gasi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
reikna hreyfingu hluta í fleti, t.d. skáköst
reikna miðsóknarhröðun hluta í hringhreyfingu
reikna út varmaskipti
reikna hreyfingu reikistjarna og gervihnatta
reikna út þrýsting í vökva og gasi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
bera ábyrgð á eigin námsframvindu
vinna í hóp til þess að leysa raunveruleg vandamál með eðlisfræði
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.